Baðferð ???

Hver skrifaði þessa vitleysisfrétt ?  Í fyrsta lagi er ekki legið í vatninu í Geysi eins og skilja má af fréttinni heldur er talað um að fara ofaní gíginn.  Annað merkilegt í fréttinni er að leiðsögumaðurinn heyrði dynki sem eru fyrirboði goss.  Og aðeins seinna segir að Geysir lætur ekki vita hvenær hann muni gjósa næst en að súla myndist áður en Strokkur gýs.  Öööhhh... eru dynkirnir aðvörun um gos eða ekki ?
mbl.is Sluppu naumlega þegar Geysir gaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkharður Jónsson

Mér finnst Albert vel að þessari hugmynd kominn en mér finnst að einnig ætti að gera styttu af Ríkharði Jónssyni og þá á meðal hann er meðal oss.  Mér hefur fundist skrýtið að heiðra fólk löngu eftir að það er farið og ekki á meðan það er hérna og getur tekið á móti viðurkenningunni.

Svo... styttu af Rikka og Berta sitthvoru megin við inngang KSI


mbl.is Stytta af Alberti rís á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo vantar bara að ...

koma stjórninni út og setja inn fólk sem getur rekið RÚV betur.  Þó maður sé ágætur í lestri og framkomu á skjánum, er það EKKI sjálfgefið að maður sé góður stjórnandi.  Skipta ber út Páli Magnússyni, Bjarna Guðmundssyni og öðrum sem hafa verið þarna allt, allt of lengi og sitja fastir í hugsuninni "já en svona höfum við gert sl. 40 ár".  Það þarf nýsköpun og betra fólk inn.  Í raun ættu starfsmenn RÚV að kjósa um sjónvarpsstjórann.  Þá yrði Páll ekki lengi í starfinu
mbl.is Afskrifa 123 milljóna skuld RÚV við ríkissjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt...

Hvað hann er líkur Ron Jeremy, klámmyndakóngi til margra ára.  Til staðfestingar fylgir hér mynd með af þeim tveimur.

 KSM-Ron-Jeremy


mbl.is Vilja játa sök um hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harkan sex !!!

Á hverjum einasta vinnustað landsins er að vinna starfsmenn með mislangan starfsferil.  Og á öllum vinnustöðum er að finna fólk sem elskar vinnuna sína.  Þessir starfsmenn hafa þekkingu sem er ekki hægt að meta að verðleikum.

Ég er fyrrverandi tæknimaður hjá RÚV - sjónvarp.  Mér þykir rosalega vænt um þessa stofnum og enn vænna um starfsfólkið þar.  Þeir eru ekki margir vinnustaðirnir geta státað af undirborguðu en samt ánægðu starfsfólki.  Ég er ekki nýr í tæknimálum, en það er svo ótrúlega mikil vitneskja sem býr í nokkrum starfsmönnum RÚV.  Sem dæmi má nefna hef ég margsinnis kafað í viskubrunn Jan Murtoma tæknimanns útvarps, Friðgeirs Axfjörð deildarstjóra á Ampex, Georgs Magnússonar, tæknimanns útvarps og Ólafs Ragnars, tæknistjóra sjónvarps.  Þessir menn eru snillingar á sínu sviði og langt út fyrir það.  Fyrir okkur hina, þessa venjulegu, er nauðsynlegt að halda í svona menn.

Að Jan Murtoma hafi verið rekinn er hægt að furða sig á.  En það eru aðrir aðilar með lengri starfsreynslu eins og Ágúst á vefnum og Ásta í leikmynda / grafíkdeild, sem einnig fengu að taka pokann sinn.  En ástæðan fyrir því að þetta hæfileikaríka fólk hafi verið látið fara hefur einfalda skýringu.

Þegar jaxl eins og Jan Murtoma er rekinn, er það einungis til að senda þau skilaboð til hinna reynslujaxlanna hjá RÚV, að enginn er óhultur.  Haltu þig á mottunni eða þú ert næstur.  Hörð skilaboð og köld sannindi.

Og eins og í flestum fyrirtækjum sem eru illa rekin, þá á að skipta út stjórnendum og ekki starfsmönnum.  Ekki nema að sýnt sé að þau séu ekki að vinna vinnuna sína.  Hvernig á stjórnandi að geta stjórnað her sínum, ef hann hefur sjálfur hent út stórskotaliðinu og heldur fótgönguliðunum.  Ég bara spyr.

Hvenær ætla starfsmenn að hætta að benda á hvorn annan og væla yfir því að hinn eða þessi sé með meira í laun en þeir sjálfir og standa saman.  Sýna fram á að þeir geti staðið saman, hvaða deild sem þeir nú tilheyri og sýna stjórnendum RÚV og stjórnmálamönnum að þeir sætti sig ekki við þetta.  Mig minnir að starfsmenn Danmarks Radio hafi farið í setuverkfall þegar þar var sagt upp um 80 tæknimönnum því nýja sjónvarpshúsið fór of langt framúr kostnaðaráætlun.

Ef þú ert með hálfsokkið skip á miðju Atlantshafi og veist að það á bara eftir að sökkva meira, skiptir þá máli hvort skipstjórinn hafi 400.000 eða 1.400.000 í laun ?  Það er eflaust hægt að finna hæfari stjórnenda en Pál Magnússon fyrir minni pening (og færri bíla) en hann fær.

Hvar er ábyrgð stjórnenda ??? 

 

 

SAMSTÖÐU OG SETUVERKFALL !!!


mbl.is Starfsmenn Rúv boða til funda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkharður Ljónshjarta

Mikið var að Haddi frændi var heiðraður af Akranesbæ.  Hann hefur alltaf verið sá sem ég hef "notað" þegar ég hef sagt að ég eigi ættingja á Akranesi.  Það þekkja jú allir Ríkharð Jónsson, knattspyrnusnilling með meiru.  Og þó það hafi verið margir aðrir góðir knattspyrnumenn og þjálfarar í fjölskyldunni (og eru enn) þá er Haddi alltaf sá sem stendur uppúr.

Hjartanlega til hamingju Haddi og Ninna.

Bestu kveðjur frá Danmörku

Hinni litli


mbl.is Ríkharður heiðursborgari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, og ???

Það er náttúrulega flott hjá henni Elínu að ná 90 ára aldri... en það er fullt af fólki sem nær þeim áfanga án þess að það verði að frétt á mbl.is.  Það er einna helst að það birtist í Morgunblaðinu með öðrum afmælisbörnum en ekki frétt í sjálfu sér.  Og fyrir þá sem halda að þetta sé fréttnæmt... hvar er fréttin ?  Ef þetta hefði verið Davíð Oddson eða annar álíka aðili, þá kannski, en ekki bara einhver þjóðbúningasaumakennari, (sem annars er frábær titill) án þess að gera lítið úr Elínu sjálfri.
mbl.is 90 ára afmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er um að gera að .....

... taka okkur saman í andlitinu áður en bretarnir koma.  Hvernig væri t.d. að færa fiskveiðilögsögu landsins út í 400 mílur ?  Mest til að ögra Bretunum og sýna þeim að við séum ekkert hrædd.  Þá gætum við líklega innlimað Færeyjar (munið olíuna).   Við getum nefnilega alveg sýnt fram á nauðsyn þessara aðgerða.  Við þurfum stærra fiskveiðisvæði til að geta brauðfætt (fiskfætt) þjóðina á þessum síðustu tímum.

Stöndum saman og látum ekki vaða yfir okkur.


mbl.is Móðgun ef Bretarnir koma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, nú er um að gera að...

Þetta blogg skrifaði ég líka við aðra frétt... finnst það meira passandi hérna. 

Nú er um að gera að fá lán hjá Rússum, Norðmönnum, Alþjóðagjaldeyrissjóðinum og fleiri ef við finnum þá.  Kannski Dönum líka, svona eftirgreiðsla eftir móðuharðindin.  Ef það tekst, er Ísland aftur "ríkt" og getur byrjað að fjárfesta erlendis.

Annars fannst mér merkilegt að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Rússar eru að íhuga að lána íslandi heila 3.1 milljarð punda.  Vá... há upphæð... eða hvað ? ? ?   Á meðan Íslendingar betla heiminn um þessa milljarða, finnur Jón Ásgeir Baugsson breskan kaupsýslumann sem er til í að leggja 2 milljarða bara í Baug.  Hvernig væri að fá þennan kaupsýslumann til að lána Íslandi þessa upphæð eða meira til ? 


mbl.is IMF lýsir vilja til að aðstoða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðamennskan er yndisleg

Óskar Bjarni er góður drengur og því kenni ég honum ekki um þessa vitleysu sem kemur fram í fréttinni, heldur enn einum snillingnum sem ráðinn hefur verið á mbl.is.

"En þeir eru sprækir“ sagði Óskar en lærisveinar hans eru taplausir eftir fjórar umferðir, með tvo sigra og tvö töp."

Það er jú mjög vel af sér vikið að vera taplaus eftir 2 sigra og 2 töp ?  Það er svipað og segja að Kaupþing hafi ekki tapað neinu eftir mið mikla tap undanfarið.


mbl.is Óskar Bjarni: Ánægður með að við skyldum breyta þessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband